Ég var að fá tilkynningu um skráningu á vanskilaskrá frá ykkur. Hver eru næstu skref hjá mér?
Fyrst þarf að athuga hver á kröfuna og hver sér um innheimtu málsins. Komi þær upplýsingar ekki fram í bréfinu er hægt að hafa samband við Creditinfo í síma 550-9600. Nauðsynlegt er að gefa upp tilvísunarnúmer svo hægt sé að fá þær upplýsingar gegnum síma. Næsta skref er að hafa samband við kröfuhafa eða lögfræðistofu ef hún sér um innheimtu málsins og greiða kröfuna sé þess einhver kostur. Sé krafan ekki greidd innan 14 daga fer hún á vanskilaskrá. Nauðsynlegt er að láta Creditinfo vita þegar krafan er greidd, hvort sem það gerist innan þessara 14 daga eða síðar. Þannig er tryggt að umrædd krafa falli af vanskilaskrá. Sé það ekki gert getur hún verið þar í 4 ár.
Hvað er vanskilaskrá Creditinfo?
Vanskilaskrá Creditinfo er gagnagrunnur á tölvutæku formi, þar sem upplýsingum um vanskil einstaklinga og lögaðila er safnað saman og miðlað. Einnig má líta á skrána sem tæki sem bankar, sparisjóðir, stofnanir og fyrirtæki, sem eiga það sameiginlegt að stunda lánaviðskipti, nota til að ákvarða lánstraust þeirra sem óskað hafa eftir lánafyrirgreiðslu af einhverju tagi.
Hverjir hafa aðgang að vanskilaskrá?
Aðilar sem hafa lögvarinna hagsmuna að gæta geta sótt um aðgang að vanskilaskrá. Hér er átt við um banka, sparisjóði og þau fyrirtæki og stofnanir þar sem lánasýsla er reglulegur hluti af rekstrinum. Jafnframt geta þær lögfræðistofur, sem innheimta mál fyrir hönd kröfuhafa, einnig haft aðgang að vanskilaskrá.
Hvaða heimildir þarf til að reka vanskilaskrá?
Upplýsingar á vanskilaskrá varða persónulegar upplýsingar um fólk og fyrirtæki. Því þarf starfsleyfi frá Persónuvernd til að reka slíka skrá. Creditinfo er með slíkt leyfi og hefur verið með frá upphafi. Um persónuvernd gilda lög nr. 77/2000 sem tóku við lögum nr. 121/1989 sem þáverandi tölvunefnd hafði umsjón með. Hafi aðili fram að færa athugasemdir eða kvörtun vegna skráningar á vanskilaskrá, er eðlilegast að stíla hana á Persónuvernd (Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík) og mikilvægt er að hún sé skrifleg. Starfsleyfi Persónuverndar er að finna hér.
Get ég séð hverjir hafa skoðað stöðu mína í vanskilaskrá?
Hægt er að fá yfirlit yfir hvaða fyrirtæki og/eða stofnanir hafa skoðað stöðu þína á vanskilaskrá. Yfirlitið nær yfir uppflettingar 2 ár aftur í tímann og það er hægt að nálgast endurgjaldslaust á skrifstofu okkar gegn framvísun persónuskilríkja. Einnig er hægt að fá yfirlitið póstsent á lögheimili með því að hringja á skrifstofuna okkar (s:550-9600) eða senda tölvupóst á netfangið mottaka@creditinfo.is og óska eftir að fá uppflettingaryfirlit. Taka þarf fram nafn og kennitölu í tölvupóstinum, sem og að óskað sé eftir að fá uppflettingaryfirlit póstsent á lögheimilið.
Hvernig tryggir Creditinfo rétt einstaklinga?
Hvaða áhrif hefur skráning á vanskilaskrá?
Til hvers er vanskilaskrá?
Tilgangur vanskilaskrárinnar er margþættur. Lánveitendur hafa m.a. ríka hagsmuni að því að kanna stöðu einstaklinga og fyrirtækja á vanskilaskrá áður en lánsumsókn er samþykkt. Einnig hafa kröfuhafar hagsmuni af því að koma kröfum sínum á vanskilaskrá, þar sem þær eru aðgengilegar öðrum lánveitendum til varnaðar. Þeir sem ekki eru með skráningu á vanskilaskrá hafa einnig hagsmuni af skránni. Lengi vel var ekki hægt að fá minniháttar yfirdrátt í banka án ábyrgðar frá þriðja aðila, sem oftar en ekki þurfti að vera fasteignareigandi. Þessir hlutir hafa breyst afar mikið með tilkomu vanskilaskráarinnar.
Hvers kyns kröfur lenda á vanskilaskrá?
Eðlilega eru kröfur frá fyrirtækjum og stofunum í lánasýslu algengar, t.d. frá bönkum, sparisjóðum, greiðslukortafyrirtækjum og öðrum fjármálastofnunum. Einnig eru algengar kröfur frá fyrirtækjum sem stunda mikil reikningsviðskipti, svo sem símafyrirtækjum, byggingavörufyrirtækjum og orkuveitum. Opinber gjöld er einnig meðal algengra krafna. Jafnframt kann að vera um ræða skaðabótakröfur og kröfur frá litlum og meðalstórum fyrirtækjum vegna ógreiddra reikninga.
Með hvaða hætti hverfa færslur af vanskilaskrá?
Færslur á vanskilaskrá eru afskráðar ef eitthvað af eftirfarandi á við:
- Creditinfo fær gögn frá kröfuhafa, eða umboðsmanni hans (lögfræðistofu) um uppgjör viðkomandi mál, t.d. ef kröfur eru greiddar. Þar sem Creditinfo berast ekki öll uppgjörsgögn sjálfkrafa er mikilvægt að hafa samband við Creditinfo til að fá staðfestingu þess efnis að búið sé að afskrá viðeigandi mál af vanskilaskrá.
- Viðkomandi færsla verður 4 ára og afskráist sjálfkrafa.
- Creditinfo fær gögn um að skráningin sá á misskilningi og/eða mistökum byggð.
- Æðra dómstig ógildir viðkomandi kröfu.
Hvar fæ ég upplýsingar um hvort eitthvað er skráð á mig á vanskilaskrá?
Yfirlit úr vanskilaskrá er hægt að nálgast endurgjaldslaust á skrifstofu okkar gegn framvísun persónuskilríkja. Einnig er hægt að fá yfirlitið póstsent á lögheimil án endurgjalds. Yfirlitin má einnig nálgast í heimabanka Landsbankans og Kaupþings gegn gjaldi viðkomandi banka. Reikningseigandi getur eingöngu sótt upplýsingar um sjálfan sig gegnum eigin heimabanka.
Fá einstaklingar og fyrirtæki viðvörun áður en þau fara á vanskilaskrá í fyrsta sinn?
Já, tilkynning um skráningu er póstsend á lögheimili viðtakanda. Þar kemur fram að upplýsingarnar verða færðar á skrá 14 dögum eftir dagsetningu tilkynningarinnar og hefur því viðtakandi tækifæri til þess að koma á framfæri leiðréttingu innan þess tíma.
Kostar mig að vera á vanskilaskrá eða að taka mig af henni?
Nei, það kostar viðkomandi einstakling eða lögaðila hvorki að vera á vanskilaskrá eða að láta taka sig af henni.
Sér Creditinfo um innheimtu mála á vanskilaskrá?
Creditinfo rekur ekki innheimtuþjónustu, hvort sem er vegna mála sem eru á vanskilaskrá eða annarra mála.
Eru stöðumælasektir og myndbönd í óskilum skráð á vanskilaskrá?
Nei, stakar stöðumælasektir og sektir vegna myndbanda í óskilum eru yfirleitt það lágar að óheimilt er að skrá þær í vanskilaskrá. Ekki er heimilt að skrá vanskil þar sem höfuðstóll kröfunnar er kr. 40.000,- eða lægri, svo fremi sem ekki er um að ræða árangurslaus fjárnám, gjaldþrot og skiptalok. Þessar síðast töldu tegundir vanskila eru skráðar án tillits til höfuðstóls.