Lánstraust

Helping Business Manage Credit


Jump to navigation

Helping Business Manage Credit

Sitemap


Fjölmiðlaupplýsingar

Prenta síðu

Fjölmiðlaupplýsingar Creditinfo veita góða yfirsýn yfir umfjöllun fyrirtækja, málefna og viðburða í íslenskum fjölmiðlum. Creditinfo vaktar umfjöllun helstu prent- og ljósvakamiðla landsins og veitir viðskiptavinum upplýsingar um alla þá umfjöllun sem þeir óska eftir. Viðskiptavinir Creditinfo geta þannig öðlast betri yfirsýn yfir umfjöllun um eigið fyrirtæki, viðkomandi atvinnugrein og keppinauta.

Undir Fjölmiðlaupplýsingar Creditinfo falla eftirtaldar þjónustuleiðir: Heildarvöktun fjölmiðla, Fjölmiðlagreining, Auglýsingagreiningar og mælingar, Tímamótabækur, Vefþjónusta, Þýðingarþjónusta Creditinfo og Leitarvél.

Heildarvöktun fjölmiðla
Creditinfo vaktar allt íslenskt efni úr dagblöðum og gerir handrit að öllum ljósvakafréttum. Efnið er bæði sent viðskiptavinum sem óska þess og einnig sett í gagnagrunn Creditinfo, sem er sá stærsti sinnar tegundar hérlendis. Þar geta viðskiptavinir leitað sjálfir að einstökum fréttum.

Prentmiðlar sem eru vaktaðir eru Morgunblaðið, Fréttablaðið, DV og Viðskiptablaðið. Auk þess eru aðrir prentmiðlar vaktaðir sé þess óskað.

Ljósvakamiðlar sem eru vaktaðir eru Ríkisútvarpið (fréttatímar kl. 8:00, 12:20, 16:00 og 18:00), Ríkissjónvarpið (fréttatímar kl. 19:00 og 22:00), Bylgjan (fréttatími kl. 12:00) og Stöð 2 (fréttatími kl. 18:30). Auk þess eru eftirtaldir þættir vaktaðir: Í bítið (Bylgjan), Morgunvaktin (RÚV), Samfélagið í nærmynd (RÚV),  Síðdegisútvarpið (RÚV), Reykjavík síðdegis (Bylgjan), Spegilinn (RÚV), Ísland í dag (Stöð 2), Kastljós (Sjónvarpið), Silfur Egils (RÚV), Fréttaaukinn (Sjónvarpið). Alla þætti er hægt að panta sérstaklega.

Önnur þjónusta sem Creditinfo býður en panta þarf sérstaklega er t.d. vöktun í íslenskum fjölmiðlum fyrir erlenda viðskiptavini, vöktun á landsmálablöðum og tímaritum, auk þess sem Creditinfo vaktar einnig umfjöllum fjölmiðla um allan heim sé þess óskað.

Sýnishorn af ljósvakafrétt:


Fjölmiðlagreining
Creditinfo kannar áhrif frétta og blaðagreina á ímynd fyrirtækis og vörur þess. Spurt er hvort viðkomandi frétt eða grein sé líkleg til að varpa jákvæðu, neikvæðu eða hlutlausu ljósi á fyrirtækið eða vörur þess. Greiningin nær til efnis í dagblöðum og ljósvakamiðlum.  

 
Auglýsingagreiningar / Mælingar
Vöktun og mæling auglýsinga er vaxandi þjónusta hjá Creditinfo. Við greinum og mælum auglýsingar í prentmiðlum eftir óskum viðskiptavina. Þannig er hægt að sjá með einföldum hætti hvernig fyrirtækið og vörur þess koma út í samanburði við samkeppnisaðila.

Ýmsar þjónustuleiðir eru í boði:

• Einföld vöktun: Auglýsingar eru sendar á pfd formi til viðskiptavinar
• Einföld vöktun og skráning: Skýrsla útbúin fyrir viðskiptavin
• Ítarlegri vöktun og skráning ásamt DSM mælingu: Skýrsla útbúin fyrir viðskiptavin
• Vörumerkjaskráning


 

Tímamótabækur
Í Tímamótabókum er greinum og fréttum safnað saman í eina fallega bók til varðveislu. Þær eru oft búnar til á sérstökum tímamótum einstaklinga eða fyrirtækja. Minna þekkt fyrirtæki og einstaklingar geta einnig komið með eigið efni, t.d. myndir, sem hægt er að setja í bókina. Ráðgjafar Creditinfo veita frekari upplýsingar um bókina en hana er hægt að vinna á ýmsa vegu.  

Vefþjónusta
Creditinfo getur sent vaktað efni beint inn á innri vef viðskiptavinarins. Þannig geta stjórnendur fyrirtækja tryggt gott upplýsingaflæði til starfsmanna sinna sem snýr m.a. að umfjöllun um eigið fyrirtæki, samkeppnisaðilum og atvinnugreininni.

Þýðingarþjónusta Creditinfo
Þýðing á innlendum fréttum og greinum verður sífellt nauðsynlegri í alþjóðlegu starfsumhverfi. Mörg íslensk fyrirtæki hafa starfsstöðvar erlendis og erlenda stjórnendur og starfsmenn. Creditinfo þýðir fréttir og greinar yfir á ensku, hvort sem um er að ræða efni um viðkomandi fyrirtæki, samkeppnisaðila eða almennar fréttir úr íslensku samfélagi.

Leitarvélin 
Leitarvél Creditinfo er stærsti gagnabanki landsins sem inniheldur fjölmiðlaefni. Með aðgangi að henni er hægt að nálgast allt dagblaðaefni frá 1. mars 2005 og ljósvakaefni frá 15. október 2004. Hægt er að leita eftir dagsetningu, miðli, orðaleit, kennitölu fyrirtækis og efnisflokki.


 


Undirsíður

  • Vanskilaupplýsingar
  • Fyrirtækjaupplýsingar
  • Vaktkerfi
  • Innheimtukerfi
  • Önnur þjónusta
  • Fjölmiðlaupplýsingar

Þjónustuver

  • Innskráning
  • Sækja um aðgang
  • Verðskrá - LT
  • Verðskrá - FMV
  • Senda ábendingu
  • Senda fyrirspurn
  • Hafa samband
  • Opnunartími skrifstofu
  • Ert þú á Vanskilaskrá?
  • Spurningar & svör

Leit


Áhugavert

  • Skilaskylda ársreikninga
  • Skýrslur um erlend fyrirtæki

Navigation

  • Vörur og þjónusta
  • Um Creditinfo

Creditinfo Ísland  |  Höfðabakka 9  |  110 Reykjavík  |  Sími: +354 550 9600  |  Fax: +354 550 9601  | creditinfo@creditinfo.is

Built on LiSA .net from Innn