Lánstraust

Helping Business Manage Credit


Jump to navigation

Helping Business Manage Credit

Sitemap


Vaktkerfi

Prenta síðu

Sendu tölvupóst á adgangur@LT.is til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar.


CIP-áhættuvakt

CIP-áhættuvakt er öflugt vaktkerfi sem vaktar breytingar á þeim upplýsingum sem hafa hvað mest vægi við útreikning á áhættumati fyrirtækja. [Meira]

Fréttavakt

Öflug upplýsingamiðlun skiptir miklu máli í viðskiptum og getur haft mikil áhrif á rekstur og ákvarðanir fyrirtækja. Það er nauðsynlegt fyrir stjórnendur að fylgjast með fréttum, hvort sem um ræðir fréttir af eigin fyrirtæki, samkeppnisaðilum eða markaðnum í heild sinni. Fréttavaktin er öflugt hjálpartæki sem vaktar fréttir og sendir til viðskiptavina. [Meira]

Vanskilavakt

Vöktun viðskiptavina og ábyrgðarmanna gagnvart skráningum í Vanskilaskrá eykur verulega gæði og öryggi útlánastarfsemi og reikningsviðskipta. Þau fyrirtæki sem nota Vanskilavakt fá sendar tilkynningar um það þegar vaktaðir viðskiptavinir þeirra eru skráðir í Vanskilaskrá. Slíkt gefur hámarkssvigrúm til viðeigandi ráðstafana svo sem: Að lækka úttektarheimildir, loka á úttektarheimildir eða að kalla eftir tryggingum. [Meira]

Afskráningavakt

Viðskiptavinir Lánstrausts hf. geta með Afskráningarvakt fengið tilkynningar um það þegar ákveðnir viðskiptavinir þeirra eru ekki lengur skráðir á Vanskilaskrá. Slíkar upplýsingar geta m.a. nýst til að reyna að nýju að innheimta ófyrndar kröfur í stað þess að afskrifa þær. Kerfið er tengt einum notanda/umsjónarmanni sem sér um að koma kennitölum í vakthólfið og fær tilkynningarnar sendar. [Meira]

Breytingavakt

Breytingavakt tengist Hlutafélagaskrá og sendir tilkynningar til áskrifanda sem varða breytingar á skráningu þeirra félaga sem vöktuð eru. Notandi/umsjónarmaður fær tölvupóst frá kerfinu ef vaktað félag hefur breytt um stjórn, prókúruhafa, formann stjórnar, framkvæmdastjóra eða tilgang félagsins, svo dæmi séu nefnd. Kerfið kannar daglega hvort breytingar hafi orðið á skráningum vaktaðra félaga. [Meira]

Hlutafélagavakt

Þetta vaktkerfi tengist nýskráningum í Hlutafélagaskrá. Hér getur áskrifandi sett inn stikkorð og fær þá tölvupóst um þau nýju fyrirtæki sem stofnuð eru, þar sem stikkorðin finnast í þeim texta sem greinir frá tilgangi þeirra. Með þessu móti fást upplýsingar um það þegar stofnuð eru félög sem teljast mega vænlegir viðskiptavinir. Kerfið kannar daglega hvort stofnuð hafi verið félög sem innihalda vöktuð stikkorð í tilgangi sínum. [Meira]

Uppboðsvakt

Lánstraust hf. skráir öll framhaldsuppboð sem birtast í Morgunblaðinu, DV, Fréttablaðinu og Víkurfréttum. Tilkynningar um auglýst framhaldsuppboð eru sendar til þeirra sem nýta sér þjónustuna og er eftirlitið daglegt.


Vaktkerfi

  • CIP-áhættuvakt
  • Fréttavakt
  • Vanskilavakt
  • Afskráningarvakt
  • Breytingavakt
  • Hlutafélagavakt

Undirsíður

  • Vanskilaupplýsingar
  • Fyrirtækjaupplýsingar
  • Vaktkerfi
  • Innheimtukerfi
  • Önnur þjónusta
  • Fjölmiðlaupplýsingar

Þjónustuver

  • Innskráning
  • Sækja um aðgang
  • Verðskrá - LT
  • Verðskrá - FMV
  • Senda ábendingu
  • Senda fyrirspurn
  • Hafa samband
  • Opnunartími skrifstofu
  • Ert þú á Vanskilaskrá?
  • Spurningar & svör

Leit


Áhugavert

  • Skilaskylda ársreikninga
  • Skýrslur um erlend fyrirtæki

Navigation

  • Vörur og þjónusta
  • Um Creditinfo

Creditinfo Ísland  |  Höfðabakka 9  |  110 Reykjavík  |  Sími: +354 550 9600  |  Fax: +354 550 9601  | creditinfo@creditinfo.is

Built on LiSA .net from Innn