Creditinfo býður upp á fjölbreytt úrval upplýsinga um innlend og erlend fyrirtæki. Slíkar upplýsingar geta komið að góðum notum við mat á útlánaáhættu bæði núverandi og nýrra viðskiptavina. Um er að ræða t.d. lánshæfisskýrslur, upplýsingar úr ársreikningum, upplýsingar um ógjaldfærni fyrirtækja, fjölmiðlaupplýsingar og greiðsluhegðunarkerfi.
Til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á adgangur@creditinfo.is eða hringja í 550 9600.
Skýrslur um erlend fyrirtæki
Creditinfo býður ítarlegar lánshæfisskýrslur um erlend fyrirtæki úr öllum heimsálfum. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar þegar meta þarf útlánaáhættu vegna nýrra og eldri viðskiptavina, sérstaklega þegar um láns- eða reikningsviðskipti er að ræða. Lánshæfisskýrslur eru einnig gagnlegar við ákvarðanatöku á samstarfsaðilum og birgjum. [Meira]
Fréttayfirlit
Aðgangur að fréttum er gagnlegur fyrir stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja. Fréttayfirlit gefur m.a. verðmætar viðbótarupplýsingar við mat á fyrirtækjum, hvort sem um er að ræða núverandi viðskiptavin eða fyrirtækið sem vill hefja viðskipti. Þær veita áskrifendum einnig mikið upplýsingargildi varðandi markaðinn í heild sinni auk þess sem þær geta haft mikið forvarnargildi. Fréttirnar geta einnig leitt af sér ný sölutækifæri. [Meira]
Hlutafélagaskrá
Upplýsingar úr Hlutafélagaskránni eru nauðsynlegar þegar kemur að mati, eða ákvarðanatöku, á hlutafélögum (hf.) eða einkahlutafélögum (ehf.). Með því að fletta upp félagi í skránni má m.a. sjá hverjir eru aðstandendur þess og hverjir mega skuldbinda það. Í Hlutafélagaskránni er einnig að finna upplýsingar um samvinnufélög (svf.), sjálfseignastofnanir í atvinnurekstri (ses) og skráð útibú erlendra félaga. [Meira]
Hlutafélagaþátttaka
Oft er nauðsynlegt að afla upplýsinga um tengsl aðstandenda ákveðins fyrirtækis við önnur félög. Það auðveldar heildarmat á viðkomandi fyrirtæki, hvort sem það er núverandi viðskiptavinur eða nýr viðskiptavinur. Hlutafélagaþátttaka er skýrsla sem inniheldur upplýsingar um tengsl aðila við félög sem skráð eru í Hlutafélagaskrá. Þeir viðskiptavinir sem kaupa aðgang að Hlutafélagaskrá geta pantað þessa skýrslu. [Meira]
Eigendaupplýsingar
Creditinfo býður upp á tvær skýrslur varðandi eigendaupplýsingar. Þær sýna annars vegar hluthafa í viðkomandi félagi og hins vegar eign viðkomandi félags í öðrum félögum (dóttur- og hlutdeildarfélögum). Eigendaupplýsingar eru góð viðbót þegar kemur að áhættustýringu, vöktun á eignasafni og vali og greiningu á núverandi viðskiptavinum. Upplýsingarnar stuðla ennfremur að upplýstari ákvörðun. [Meira]
Fyrirtækjaskýrsla
Fyrirtækjaskýrslan gefur góða yfirsýn yfir fjárhagsstöðu fyrirtækja og hentar vel við mat á greiðsluhæfi þegar undirliggjandi áhætta er í meðallagi miki. Skýrslan inniheldur grunnupplýsingar um fyrirtæki, t.d. allar upplýsingar úr Hlutafélagaskrá, lykiltölur úr rekstri og efnahag úr 3 nýjustu ársreikningum sem skráðir eru í ársreikningagrunn Creditinfo auk kennitalna fyrir sömu ár og upplýsingar um fjölda færslna í Vanskilaskrá. [Meira]
LT-skýrsla
LT-skýrslan er ítarlegasta skýrsla Creditinfo. Hún gefur góða yfirsýn yfir fjárhagsstöðu fyrirtækja og hentar vel við mat á greiðsluhæfi þegar undirliggjandi áhætta er meiri en í meðallagi. Þar koma fram nær allar upplýsingar sem Creditinfo býr yfir og eru sumar þeirra hvergi aðgengilegar annars staðar, t.d. CIP áhættumatið sem metur líkur á ógjaldfærni fyrirtækja. [Meira]
Ársreikningar
Ársreikningar veita upplýsingar um fjárhagslega stöðu fyrirtækja og eru þeir því mjög gagnlegir við heildarmat fyrirtækja. Creditinfo býður upp á tvenns konar upplýsingamiðlun vegna ársreikninga. Annars vegar er boðið upp á skönnuð afrit ársreikninga sem hefur verið skilað til Ríkisskattstjóra. Hinsvegar er boðið upp á ársreikninga í stöðluðu formi og er þar um að ræða alla þá ársreikninga sem skilað hefur verið til RSK frá 1995, skv. lögum um ársreikninga. [Meira]
Greiðsluhegðunarkerfi
Kerfið gengur út á söfnun og miðlun upplýsinga um hve langan tíma það tekur lögaðila að greiða sína reikninga, m.ö.o. hvort viðkomandi greiddi á eindaga eða einhverjum dögum fyrr eða síðar. Þátttakendur í kerfinu senda mánaðarlega inn upplýsingar um greiðsluhegðun allra þeirra lögaðila sem þeir hafa í viðskiptum. Kerfið inniheldur ekki upplýsingar um greiðsluhegðun einstaklinga, ekki koma heldur fram fjárhæðir reikninga/krafna. Upplýsingum úr Greiðsluhegðunarkerfinu er ætlað að gefa enn betri möguleika á að meta viðskiptavini og verðandi viðskiptavini.
Þeir sem nota upplýsingarnar verða betur í stakk búnir til að meta vænta greiðsluhegðun viðkomandi fyrirtækis hvort sem það er í viðskiptum eða er að koma inn sem nýr viðskiptavinur því slíkar upplýsingar liggja fyrir frá ýmsum fyrirtækjum (þátttakendum). [Meira]
CIP Áhættumat
CIP Áhættumat er tölfræðilegt reiknilíkan sem metur líkur á alvarlegum vanskilum (e: Probability of Default, PD) íslenskra fyrirtækja innan tólf mánaða. Með áhættumatinu fá viðskiptavinir Creditinfo Ísland tæki til að meta á einu augnabliki hvaða fyrirtæki eru líkleg til að lenda í alvarlegum vanskilum. Áhættumatið nýtist í ákvörðun um reikningsviðskipti, við verðlagningu eða til að meta samstarfsaðila. [Meira]
Fyrirtækjaskrá
Aðgangur að Fyrirtækjaskránni er t.d. gagnlegur þegar tiltekið félag er ekki skráð í Hlutafélagaskrá, rekstrarforms síns vegna, og þörf er á að sjá hver stendur að því. Fyrirtækjaskráin er uppfærð daglega. Hún inniheldur m.a. ÍSAT númer (íslensk atvinnugreinaflokkun), virðisaukaskattsnúmer og nafn og kennitölu forsvarsmanns. Aðgangi að Fyrirtækjaskrá fylgir einnig aðgangur að Þjóðskrá. [Meira]
Skannaðar samþykktir
Creditinfo býður viðskiptavinum sínum aðgang að skönnuðum samþykktum, stofnsamningum og stofnfundargerðum þeirra félaga sem skráð eru í Hlutafélagaskrá. Samþykktirnar, sem ná aftur til ársins 2002, eru aðgengilegar öllum þeim sem aðgang hafa að VOG og Fyrirtækjaupplýsingum. [Meira].