Það er nauðsynlegt að þekkja stöðu viðskiptavina sinna, sérstaklega í láns- og reikningsviðskiptum. Slíkar upplýsingar hafa áhrif á ákvarðanatöku gagnvart núverandi viðskiptavinum og þeim sem óska eftir viðskiptum.
Creditinfo býður upp á fjölbreyttar þjónustuleiðir til að meta vanskil viðskiptamanna. Notkun þeirra hjálpar fyrirtækjum við að taka réttar ákvarðanir, leiðir til öruggari viðskipta og lágmarkar útlánatöp.
Til að panta aðgang eða fá nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á adgangur@creditinfo.is eða hringja í 550 9600.
VOG - Vanskil og opinberar gjörðir
VOG inniheldur upplýsingar um alvarleg vanskil, tengsl aðila við gjaldþrota félög, kaupmála og fjárræðissviptingar. Þessum upplýsingum er ætlað að auðvelda ákvarðanatöku, stuðla að réttum ákvörðunum og leiða til öruggari viðskipta. [Meira]
Vanskilaskrá
Aðgengi að Vanskilaskrá Creditinfo er einungis boðið með vefþjónustu (SOAP) en með því að tengjast skránni á þennan hátt gefst viðskiptavinum möguleiki á að kalla eftir upplýsingum og birta þær í eigin bókhalds- eða viðskiptamannakerfum. Skráin inniheldur vanskilaupplýsingar um einstaklinga og lögaðila/fyrirtæki. Þær eru sérstaklega gagnlegar þegar um láns- og reikningsviðskipti er að ræða. Vanskilaskránni er ætlað að skila bættri ákvarðanatöku og leiða til öruggari viðskipta. Skráin er uppfærð jafnóðum og upplýsingar berast Creditinfo. [Meira]
Einstaklingsskýrsla
Einstaklingsskýrslan auðveldar mat á áhættu viðskipta. Hún inniheldur upplýsingar um stöðu einstaklinga á vanskilaskrá, fjölda tengsla við félög skráð í hlutafélagaskrá ásamt beinum og óbeinum eignatengingum við lögheimili. [Meira]
CIP - Einstaklingar
CIP-einstaklingar reiknar líkur á alvarlegum vanskilum, þ.e. að einstaklingur verði skráður á vanskilaskrá, út frá fjölda breyta sem hafa mismunandi vægi eftir því hversu sterkar þær eru. [Meira]
GÁT - Gjaldþrot, árangurslaus fjárnám og tilkynningar
GÁT er mun minni skrá en Vanskilaskrá og upplýsingarnar því töluvert takmarkaðri. Í láns- eða reikningsviðskiptum getur GÁT verið gróft öryggisnet en hún kemur ekki í staðin fyrir VOG eða Vanskilaskrá. Upplýsingar í GÁT eru um fullnustuaðgerðir sem komið hafa til kasta sýslumanna eða héraðsdómstóla. [Meira]
Fjölleit
Fjölleitin er gagnleg við greiningu viðskiptamannahóps. Með henni er hægt að fá upplýsingar um hvaða viðskiptavinir eru í greiðsluerfiðleikum skv. Vanskilaskrá Creditinfo. [Meira]