Creditinfo Ísland
Helping Business Manage Credit
|
Lánstraust og Fjölmiðlavaktin sameina krafta sína undir heitinu Creditinfo Ísland |
Fréttir Creditinfo Ísland
FréttasafnUmboðsmaður lántakenda hjá Creditinfo
09 | 10 | 2009Creditinfo hefur sett á fót nýtt stöðugildi umboðsmanns lántakenda. Er umboðsmanni ætlað að vinna að því að auka aðgengi fólks að upplýsingum um sig sjálft og kanna sjálfstætt hvers kyns ágreiningsmál. Umboðsmaður mun einnig hafa eftirlit með viðskiptavinum félagsins, hvað starfsleyfisskyldar upplýsingar varðar.
MeiraFjöldi stofnaðra fyrirtækja stendur í stað milli ára
03 | 09 | 2009Átta fyrstu mánuði ársins voru nánast jafnmörg fyrirtæki stofnuð hér á landi og fyrir bankahrunið í fyrra. Rúmlega 1.730 fyrirtæki voru stofnuð á tímabilinu á meðan 1.769 fyrirtæki voru stofnuð á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í úttekt sem Creditinfo vann fyrir Fréttablaðið um stofnun nýrra fyrirtækja frá árinu 2005. Fréttablaðið fjallar um úttektina á forsíðu blaðsins í dag.
MeiraInnkallanir vegna greiðsluaðlögunar ekki á vanskilaskrá
01 | 09 | 2009Creditinfo hefur breytt skráningarferli sínu varðandi vanskilaskrá. Nú eru upplýsingar á innköllunum vegna greiðsluaðlögunar ekki lengur skráðar þar enda flokkast slík mál undir upplýsingar um „opinberar gjörðir“.
MeiraCreditinfo hefur aukið þjónustu við notendur
13 | 07 | 2009Creditinfo hefur tekið í notkun nýjan þjónustulið á vefnum sem gefur notendum kost á að komast í beint samband við starfsfólk Creditinfo þegar upp koma spurningar eða aðstoðar er þörf. Þjónustan, sem einfaldlega ber heitið Aðstoð, er opin öllum notendum og er að finna efst í hægra horni creditinfo.is eftir að notandi hefur skráð sig inn. Með þessu vill Creditinfo auðvelda viðskiptavinum að koma fyrirspurnum á framfæri við starfsfólk félagsins og um leið búa þannig um hnútana að notendur njóti aðstoðar um leið og hennar er þörf.
MeiraSíðustu jákvæðu fréttir vikunnar
22 | 06 | 2009Í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun voru síðustu jákvæðu fréttir vikunnar kynntar í sumar. Alls fundu starfsmenn Creditinfo Fjölmiðlavaktarinnar 96 jákvæðar fréttir sem er næst mesta magn frá því mælingar hófust í febrúar. Jákvæðasta frétt vikunnar var valin frétt Fréttablaðsins um góðan árangur 66° Norður. Fyrirtækið hlaut nýlega Apex verðlaunin frá Polartec fyrir framúrskarandi hönnun þriðja árið í röð.
MeiraFrétta- og þáttayfirlit
Fréttayfirlit -29.9.2009
30 | 09 | 2009SVEITARFÉLÖG GÆTU ORÐIÐ 17 Ákveðið hefur verið að sameina sveitarfélög með lögum en hingað til hafa sveitarfélögin ráðið sameiningarmálum sínum sjálf. Fjögurra manna hópur mun á næstu mánuðum teikna upp ný sveitarfélög að höfðu samráði við íbúa á hverjum stað. Kristján L. Möller, samgönguráðherra og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, teknir tali. Tími: 01:40
MeiraÞáttayfirlit -29.9.2009
30 | 09 | 2009GUÐ BLESSI ÍSLAND Það eru margir sem bíða spenntir eftir frumsýningu heimildarmyndarinnar, Guð blessi Ísland eftir Helga Felixson. Í myndinni fylgist Helgi með atburðum í kjölfar hrunsins og hvaða áhrif breytt ástand í landinu hafði á nokkra einstaklinga. Helgi ræðir í myndinni einnig við þá Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólf Thor Björgólfsson og Bjarna Ármannsson. Rætt við Helga Felixson, kvikmyndagerðarmann sem hefur verið beittur miklum þrýstingi að undanförnu og farið hefur verið fram á að hann klippi stór atriði úr myndinni og jafnvel eyði henni. Tími: 15:05
MeiraÞáttayfirlit -28.9.2009
29 | 09 | 2009SPURNINGARNAR FRÁ EVRÓPUSAMBANDINU Nú sitja menn sveittir í ráðuneytum og víðar í stjórnkerfinu við að svara rúmlega 2.500 spurningum frá Evrópusambandinu en hvaða spurningar eru þetta eiginlega af hverju þurfum við að svara þeim? Rætt við Kristján Vigfússon, forstöðumann Evrópufræða við Háskólann í Reykjavík. Tími: 11:05
MeiraFréttayfirlit -28.9.2009
29 | 09 | 2009GETA STUNDAÐ FRAMHALDSNÁM Í HEIMABYGGÐ Framhaldsskólanemendur á Þórshöfn geta nú stundað námið í heimabyggð fyrstu tvö árin. Menntamálaráðherra segir kostnaðinn við þetta lítinn miðað við kostnað foreldra af því að senda börnin í annað bæjarfélag til náms. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, verkefnisstjóri og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, teknar tali. Tími: 01:35
Meira